Þriðjudagur, 20. mars 2007
Kommi/Krati/Kapítalisti
Um hvað snúast stjórnmál á Íslandi í dag annað en völd? Þau snúast að minnsta kosti ekki um hugsjón. Það sést glögglega þegar litið er á færslu Alþingismanna milli þingflokka. Er þetta virkilega leyfilegt?
Er virkilega leyfilegt að ganga úr einum flokk í annan eftir geðþótta þennan daginn? Hvað gerist ef stjórnarmeirihluti veltur á slíkum færslum. Á þá ríkisstjórn, kosin lýðræðislega af þegnum þessa lands að falla, vegna gengis eins manns í prófkjöri?
Svarið er nei og við vitum það öll. Ef þú Gunnar/Valdimar/Kristinn getur ekki setið á þér þá skaltu bara gjöra svo vel að standa upp og ganga út af Alþingi fyrir fullt og allt!
Athugasemdir
sæll og blessaður Stefán, þú varst þess heiðurs aðnjótandi að verða bloggvinur minn nr 50, ég beið með öndina í hálsinum við tölvuna eftir að þetta gerðist
til hamingju með það, og takk
ps. ég gæti ekki verið meira sammála þér um íslensk stjórnmál
halkatla, 20.3.2007 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.